Auglýsing

1 & 2 umferð í Enduro

Mx búðir

upplýsingar um ís rally crossið

Heyrst Hefur Að

Að það sé að verða lítið eftir af ósnertum hengjum í Grímstaðaheiði

Að Andri hafi sigrað Brekkuklifrið (en ekki á yamaha?!)

Að hugsamlega sé nýlegt ktm á leið í Sveitina

Að Siggi bjarna sé að strjúka 2010 kawanum

Að baráttan um klaustur/járnkallinn sé hafin í ræktinni?!

Að Magnús þorri sé að bætast í góðra vina hóp!

Að nýtt Kawasaki sé komið á Skútustaði

Að enduroið sé á næsta leiti og norðanmenn munu taka nagladekkin undan daginn áður!

Að Siggi litli sé sturlaður á fjórhjólinu

Að Gæsafjöllin séu sigruð

Að #960 sé hjúkkufóður

Að Hjarnið sé hreynlega of Gott!

Að Steingrímur komi illur í næsta mót!

Að Stelpa hafi tekið Sigga í síðasta móti..

Að Team ICE-Andi sérhæfi sig í fjallaklifri

Að Andrea sé að verða hættulega hröð

Að Mývetningar hafi hæsta hlutfall hjólara í einu bæjarfélagi, í heiminum!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ekkert Snowcross um helgina

29. apríl 2010 klukkan 23:16
ASÍ tilkynti í dag að Hætt hefði verið við að halda lokaumferðina í snowcrossi um helgina og er það mjög miður þar sem að aðstæður eru frábærar til að halda mót..

  en við förum þá bara og hjólum á Ólafsfyrði í staðinn. sunnudag eða laugardag? hverjir eru game?
Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd

Snowcross í Mývatnsvei næstu helgi

27. apríl 2010 klukkan 22:51
Vegna þess að fyrstu umferðinni á Snocross tímabilinu 2010 var aflýst í febrúar á Akureyri hefur verið ákveðið að troða inn móti til að fullgera tímabilið. Ákveðið hefur verið að halda 3. umferðina og jafnframt þá síðustu á Snocross tímabilinu 2010 þann 1. maí í Kröflu við Mývatn. Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar mun sjá um mótshaldið og vegna annarra atburða í sveitinni hefst mótið frekar snemma og verður því búið fyrr. Æfingar munu því byrja klukkan 09.00 og keppni hefst klukkan 10.00. Aðgangseyrir verður krónur 1000. Vonumst við til að sjá sem flesta mæta í sveitina og keppa eða fylgjast með síðustu Snocross keppni ársins 2010.

Tekið af www.jonni.is




Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd

Video Frá sunnudeginum

27. apríl 2010 klukkan 22:16
Já við félagarnir fórum aftur á Stúfana á sunnudaginn, en í þetta skiptið var Steinar með á videovélinni.. við setum stefnuna á hólasand í leit að hengjum. við fundum nú engag almennilegar hengjur.. en skemtum okkur þó Konunglega!

Klikka Á Myndina Fyrir Video!
 
Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd

Snildar hjarn/púður túr hjá strákunum.

24. apríl 2010 klukkan 15:16
Já við félagarnir, Andri, Steingrímur og ég fórum í dag í hjarn/púður túr upp í heiði.. færið hefði sosum mát vera betra en við skemtum okkur helvíti vel í sólinni. Steini tók myndavélina meðferðirs og náði smá video aður en vélin varð batteríslaus. ég henti saman smá klippu.
Anton Freyr Birgirsson
1 athugasemd

Sumarið að koma!

20. apríl 2010 klukkan 20:32
Jæjja nu er að styttast i sumarið

og skemtilegur vetur að baki. Ég er Hrikalega sáttur eftir veturinn og það var mjög gaman að sjá hversu mikil mæting var á ísinn um helgar og hve virkur félagskapurinn var. ég vill þar með þakka öllum fyrir skemtilegan vetur :D 



EN!

 nú þíðir ekki að setja tærnar upp í loft, það stittist óðum í næsta mót sem að er á Suðurlandi þann 8 maí næstkomandi og það eru nú ekki nema 17 dagar í það... 17 dagar ´eru fljótir að líða.  þannig að nú er að æfa, æfa, æfa, æfa.



Enduro Braut í Garðinum!

ég er búinn að græjja smá enduro braut hérna í Ólafstúni í heiðinni fyrir ofan mig og náði nokkrum dögum þar áður en fór að sjóa aftur :( en um leið og að hættir að snjóa þá eru menn velkomir að koma og drullumallast með mér í brautinni þangað til að henni verður breitt í tún. og því fleiri því skemtilegra!
"brautinn" saman stendur af 70% DRULLU og 30% móa og er því fín æfing hvað þol varðar og akstur í Röttum. Allavega vona ég að þetta verði Skemtilegir dagar frammundan og að veðrið fari nú að skána!
(hérna eru nokkar myndir úr Flaginu síðan í Firra.)
Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd

Klaustur vakið af værum svefni!

08. febrúar 2010 klukkan 14:12

Tekið af www.motocross.is

Stjórn VÍK hefur komist að samkomulagi við nýjan aðila um að halda Off-Road challenge í sumar.  Brautarstæðið er á Suðurlandinu og er stórglæsileg og í anda Klausturskeppnanna sem haldnar voru í upphafi þessarar aldar. Að sögn formannsins er svæðið gríðarlega spennandi, steinlaust, hólar, hæðir, sandur og annað skemmtilegt.

Nánari upplýsingar verða kynntar fljótlega og skráning hefst á www.motocross 1.mars á miðnætti.

Nú rífum við upp gömlu klausturstemminguna og mætum herskari af mývetningum!

Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd

Teem ICE-Andi Sigraði Gæsafjöll

03. febrúar 2010 klukkan 11:15
 

Sunnudaginn 31 Janúar 2010 fór fyrstur manna: Andri Karlsson á Mótorhjóli á Jónstind, hæsta punkt Gæsafjalla.


 
 
þeir fóru 3 drengir í þessa svaðilför: Andri Karlsson, Jón Ásgreir og Steingrímur Örn.
þeir sigruðu allir tindinn á endanum. frábær staður frábært veður og ég hefði gjarnan viljað vera með þeim þarna.


Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd

Fyrsta ískrossið Afstaðið!

02. febrúar 2010 klukkan 13:12
jæjja.. ég ætla nú að birja á að afsaka hversu langt er síðan hingað hefur borist blogg... en nóg um það Cool


Íscross á Mývatni 30.1.2010 210.jpg  
 
 
Síðastliðna helgi var haldið ískrossmót hérna hjá okkur í Mývatnsveit. nánar tiltekið á Stakhólstjörn við Skútustaði. keppnin átti upprunalega að vera haldin á Ólafsfyrði en vegna slæmra aðstæðna þar var ákveðið að flytja mótið til okkar.
við mættum snemma og drifum mótið af til að allir gætu horft á Handboltann í seli og gætt okkur á hamborgurum og fljótandi veigum.

MSÍ hefur ekki einþá birt formleg úrslit mótsins en hér er ég með top. 3 úr öllum flokkum

85cc flokkur
1. Haraldur Örn Haraldsson
2. Kristján Helgi Garðarsson
3. Óliver Örn Sverrisson

Kvennaflokkur
1. Andrea Dögg Kjartansdóttir
2. Ásdís Elva Kjartansdóttir
3. Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir

Standard flokkur
1. Daði Erlingsson
2. Anton Freyr Birgisson
3. Erling Valur Friðriksson

Opinn flokkur
1. Ásgeir Hall
2. Ragnar Ingi Stefánsson
3. Þorgeir Ólason

frábær úrslit fyrir mývetninga! við áttum mann/konu á palli í öllum flokkum. í kvennaflokki var sankallaður systraslagur og þær múlasystur skiptu á milli sín verlaunapallinum Ásta fékk sína fyrstu dollu og Ásdís sýndi að Andrea gæti þurft að fara að vara sig
. Ásgeir sýndi "gömlu köllunum" í opnaflokkinum í tvo heimana og átti daginn.
Ég og Daði áttum skemtilegan dag í vetradekkjaflokknum og tjahh "klöppuðum" hvor öðrum annað slagið yfir daginn og Daði hafði betur undir lokinn, Jón Áskgeir sýndi frábærann akstur yfir öll hítin og verður gaman að sjá hvar hann endaði í "over all" en ökumaður dagsins hlítur að vera Andrea Dögg þar sem hún var með fullt hús stiga í kvennaflokki og blandaði sér einnig í toppslaginn í vetradekkjaflokki.
Team green North átti flesta þáttakendur á mótinu og það var sannalega grænleitur litur á keppnisstað þar sem að um helmingur hjólana sem tóku þátt á ísnum voru fallega kawasaki græn:D
því miður var eithvað minna um myndatökur þetta mótið og lítið er til að myndum um daginn. en nokkrar myndir eru inn á www.motocross.is  

ég vill þakka öllum fyrir frábærann dag og vona að við sjáum sem flesta á næsta móti á Akureyri eða Reykjavík í febrúar. 
Anton Freyr Birgirsson
Almennt | Engin athugasemd

Miðnætur Enduro á Bolöldu

29. apríl 2009 klukkan 11:24

Jæja þá er komið að því að skráning í Miðnæturkeppnina - (Bolaalda Mid-Night Offroad Run 2009). Keppt verður sem fyrr í 6 tíma þolaksturskeppni á lengsta degi ársins. Keppnin sem haldin var í fyrsta sinn á síðasta ári fékk frábærar viðtökur en hátt í 300 ökumenn tóku þátt í keppninni og þeir sem ekki tóku þátt eru væntanlega enn að svekkja sig á því. Keppnin hefst stundvíslega kl. 18.01 og lýkur ekki fyrr en 6 tímum síðar kl. 00.01 eftir miðnætti 21. júní, á lengstu nótt ársins.

Skráning í keppnina hefst á miðnætti (00.00) fimmtudagskvöldið 7. maí hér á vefnum. Ath. að fyrstir koma – fyrstir fá því raðað verður á startlínu eftir skráningartíma ökumanna/liða! Það er því vissara að stilla vekjaraklukkuna og stilla sér upp við tölvuna kl. 23.59 fimmtudagskvöldið 7. maí

        

Keppnisgjald er 5000 kr. á mann og menn verða að vera skráðir félagar í akstursíþróttafélagi þ.e. VÍK eða öðru félagi og hafa greitt félagsgjald fyrir 2009.

Brautin í fyrra bauð upp á frábæra keppni. Markmiðið með brautarlagningunni nú er að bjóða bæði krefjandi og skemmtilega slóða sem þó henta öllum. Keppnin er hins vegar löng og margt sem getur komið upp á 6 klukkustundum. Á síðasta ári var frábært veður sem gerði keppnina einstaklega eftirminnilega. Við höfum þegar pantað gott veður þetta kvöld hjá Veðurstofunni.

Keppt verður í flokkum karla og kvenna auk þess sem blönduð lið geta líka tekið þátt í eins, tveggja og þriggja manna liðum. Um daginn verður haldin keppni fyrir yngstu ökumennina í 85/150 flokki og 125/250 flokki. Öllum umboðum og þjónustuaðilum stendur til boða að vera með á sýningu á vörum og hjólum og tengdum vörum, auk þess sem um kvöldið verður boðið upp dúndrandi tónlist og fleiri skemmtiatriði. Í lok keppninnar verður keppendum og viðstöddum boðið upp á hressingu a la chef Katoom. Verðlaunaafhending verður kl. 1.00 um nóttina.

Tekið af WWW.motocross.is

Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd

Enduroæfingar

27. apríl 2009 klukkan 12:17
VIð steingrímur skeltum okkur í smá Enduro session um helgina á svæði sem á að fara rífa upp fyrir tún,
helvíti góð æfing, tók hrottalega á, ég setti in myndir af þessu hérna inn á myndasíðuna. Arnþór kallin kom með okkur og var á myndavélinni allann tíman.

Anton Freyr Birgirsson
Engin athugasemd